|
Faggiltir innri endurskoðendur
© FIE - Félag um innri endurskoðun Kjalarlandi 35 108 Reykjavík kt: 670302-5220 Póstur: fie@fie.is
|
Nýlegar fréttir frá FIE Morgunverðarfundur FIE - Sviksemisrannsóknir - 18. janúar 2012 Fyrsti fræðslufundur á nýju ári verður miðvikudaginn 18. janúar kl. 8:30-10 á Grand Hoteli. Að venju er boðið upp á morgunverð. Verð kr. 2500. Gestur fundarins að þessu sinni er Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari sem ætlar að halda fyrirlestur um sviksemisrannsóknir og svara síðan fyrirspurnum fundarmanna. Ólaf þarf varla að kynna en hann var skipaður sérstakur saksóknari í janúar 2009. Embættinu var komið á fót til að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og í kjölfar atburða er leiddu til bankahrunsins, hvort sem grunur tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga. Missið ekki af einstæðu tækifæri til að heyra hvað Ólafur hefur að segja um störf og vinnuaðferðir embættis sérstaks saksóknara við rannsóknir á sviksemi. Vinsamlegast sendið þátttökuskráningu á netfangið fie@fie.is sem fyrst og ekki síðar en mánudaginn 16. janúar. Með kveðju, Fræðslunefnd FIE
Málstofa Félags um innri endurskoðun - 7. desember. 2011 Málstofa Félags um innri endurskoðun verður haldin í Turninum við Smáratorg miðvikudaginn 7. desember 2011. Málstofan hefst kl. 10 með erindum frá þremur félagsmönnum, því næst verða málefnin rædd í vinnuhópum og niðurstöður hópanna kynntar. Að lokum verða almennar umræður. Fundi lýkur með hádegisverði af jólahlaðborði Veisluturnsins á 19. hæð. Umræðuefni verða: Áhættumiðuð innri endurskoðun, Tilvist óáþreifanlegra eftirlitsþátta („Soft controls“) og Staðfestingarvinna og ráðgjöf - hvar liggja mörkin? Frummælendur: Auðbjörg Friðgeirsdóttir, MBA / verkefnisstjóri innri endurskoðunar á endurskoðunarsviði PwC, Ágúst Hrafnkelsson, innri endurskoðandi Íslandsbanka og Guðmundur I. Bergþórsson, framkvæmdastjóri innri endurskoðunar Orkuveitu Reykjavíkur Fundurinn var haldinn í kjölfar haustráðstefnu FIE í október 2011, auk þess sem niðurstöður skoðanakönnunar meðal félagsmanna í september 2011 sýna að félagsmenn vilja meiri umræðu um áhættustjórnun og áhættumat.
AuditChannel.TV - Ný áhugaverð vefsíða frá IIA IIA hefur sett á stofn vefsíðu sem hefur að geyma myndskeið af fyrirlestrum og fleira efni efni tengdu innri endurskoðun. Smellið hér til þess að kíkja á AuditChannel.tv.
Haustráðstefna Félags löggiltra endurskoðenda - 4. nóv. 2011 Félag lögiltra endurskoðenda heldur haustráðstefnu sína 4. nóvember á Grand Hóteli. Félögum í FIE er velkomið að sækja ráðstefnuna. Nánari upplýsingar og skráning á ráðstefnuna má nálgast á heimasíðu FLE.
Morgunverðarfundur FIE - Ernst & Young Noregi - 28. okt. 2011 Fræðslufundur FIE verður haldinn föstudaginn 28. október kl. 08:30 - 10:00 á Grand Hóteli. Boðið verður upp á morgunverð. Verð 2.500 kr. Fyrirlesarar:
Kjetil Kristensen, forstöðumaður ráðgjafasviðs (Advisory RISK) Ernst & Young í Noregi
Unlocking the Value of Internal Audit
Sigurjón Geirsson, Senior Manager (Advisory RISK) hjá Ernst & Young í Noregi
Nýtt regluverk fyrir banka og tryggingafélög (Basel III, Solvency II). Aukin áhersla á áhættustýringu og virkni stjórnskipulags.
Morgunverðarfundur FIE - Starfshættir endurskoðunarnefnda- 6. sept. 2011 Fyrirlesarar:
Kristín Baldursdóttir, forstöðumaður innri endurskoðunar hjá Landsbankanum. Endurskoðunarnefndir - skipan, hlutverk og viðfangsefni. Erindi sitt byggir hún meðal annars á kynnum sínum af störfum endurskoðunarnefnda Saxo Bank, Den Danske Bank og Landsbankans, auk þess sem Kristín mun rýna í niðurstöður kannana og annað efni frá Audit Committe Institute (ACI), sem rekin er af KPMG í Bretlandi. Meðal annars er horft til þeirra viðfangsefna sem stofnunin hefur tilgreint sem mikilvægustu viðfangsefni ársins 2011.
Auðbjörg Friðgeirsdóttir, endurskoðunarsviði PWC.
Hvernig getur aukin skilvirkni endurskoðunarnefnda hjálpað til við að endurbyggja traust í íslensku viðskiptaumhverfi?
Erindi sitt byggir hún á ritgerð sem hún skrifaði sem hluta af MBA námi við University of Liverpool. Umfjöllunarnefni ritgerðarinnar var:
"An investigation on the methods to improve the effectiveness of Audit Committees (AC) in Icelandic companies: As one way to rebuild a trust in Icelandic busines"
Fundurinn er öllum opinn og hvetjum við félagsmenn til að koma upplýsingum um fundinn til fulltrúa endurskoðunarnefnda.
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 6. september kl. 08:30 - 10:00 á Grand Hóteli.
Boðið verður upp á morgunverð. Verð 2.500 kr.
Fréttabréf FIE - júlí 2011 Fræðslunefnd FIE hefur tekið saman fréttabréf FIE. Þar er m.a. að finna upplýsingar um væntanlega haustráðstefnu FIE. En vakin er athygli á að skrá þarf sig á hana sérstaklega snemma í ár eða helst eigi síðar en 15. ágúst. Blaðið má nálgast hér á þessari síðu.
Haustráðstefna FIE - 6-7 október 2011 Það er okkur ánægjuefni að kynna fyrirhugaða haustráðstefnu FIE sem haldin verður dagana 6. - 7. október 2011 undir yfirskriftinni „ Risk Based Auditing: A Value Added Proposition“. Hér má finna nánari kynningu á ráðstefnunni og fyrirlesaranum. Við hvetjum ykkur einnig til að kynna ykkur heimasíðu fyrirlesarans sem er: www.lhubbard.com Bestu kveðjur, Fræðslunefnd FIE
Ráðstefna ECIIA í Madríd 2011
Vakin er athygli félagsmanna á ráðstefnu Evrópusamtaka innri endurskoðenda (ECIIA) sem haldin verður í Madrid daganna 19. - 21. október n.k. Hér má finna dagskrá ráðstefnunnar. Aðalfundur Félags um innri endurskoðun - 27. maí 2011 Aðalfundur Félags um innri endurskoðun var haldinn föstudaginn 27. maí 2011 kl. 8:30. Fundarstaður var á 19. hæðinni í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins: 1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu ári. 2. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar. 3. Breytingar á samþykktum – engar tillögur lagðar fram. 4. Kosning stjórnar. 5. Kosning formanna nefnda. 6. Kosning endurskoðanda annað hvert ár. 7. Ákvörðun félagsgjalds. 8. Önnur mál. Fundargerð aðalfundar, skýrsla stjórnar og ársreikningur félagsins er aðgengilegur fyrir félagsmenn hér á heimasíðunni undir liðnum: "Fyrir félagsmenn / Members Library" Stjórn Félags um innri endurskoðun
Fréttablað ECIIA - apríl 2011 Evrópusamtök innri endurskoðenda (ECIIA) hafa gefið út fréttabréf sem nálgast má hérna.
Morgunverðarfundur FIE - Fjármálaeftirlitið, stjórnarhættir og innri endurskoðun – ný viðmið í eftirliti - 27. apríl 2011 Fyrirlesarar: Sigurður Valgeirsson, upplýsingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins; FME – ný stefna og framtíð Hrafnhildur S. Mooney, sérfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu; Stjórnarhættir og innri endurskoðun - ný viðmið í eftirliti Fundurinn var haldinn miðvikudaginn 27. apríl kl. 08:30 - 10:00 á Grand Hóteli. Með kveðju,Fræðslunefnd FIE .
Endurskoðunardagur Félags löggiltra endurskoðenda - 15. apríl 2011 Vakin er athygli félagsmanna á endurskoðunardegi FLE sem haldin verður 15. apríl n.k. og Dagskráin hefst kl. 8:30 og er hin vandaðasta. Fjallað verður um Innri endurskoðun, Grænskýrsluna, umhverfi endurskoðenda á Íslandi og notkun alþjóðlegu endurskoðunarstaðlana við endurskoðun lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Ráðstefnan er öllum opin. Skráning fer fram á heimasíðu FLE. Nálgast má dagskrá ráðstefnunnar hér. Að venju verður námskeið haldið á daginn fyrir Endurskoðunardaginn og mun Erlendur Davíðsson sérfræðingur og stundakennari hjá HÍ fjalla um mat á virði fyrirtækja.Dagskrá þessa námskeiðs má finna hér. Endurskoðunardagurinn gefur endurmenntunareiningar.
Fréttabréf FIE - mars 2011 Fræðslunefnd FIE hefur tekið saman fréttabréf FIE, í því eru að finna ýmsar fróðlegar greinar. Blaðið má nálgast hér á þessari síðu.
Skýrsla nefndar um málefni endurskoðenda - 25 mars 2011 Á Innri endurskoðunardeginum kynnti Sigurður Þórðarson formaður nefndar um málefni endurskoðanda á vegum efnahags- og viðskiptaráðuneytisins niðurstöður nefndarinnar. Skýrslan er aðgengileg á vefsíðu efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Þó svo að innri endurskoðun hafi ekki verið viðfangsefni nefndarinnar eru að finna í skýrslunni áhugaverðar ábendingar um innri endurskoðun.
Innri endurskoðunardagurinn 25. mars 2011 Innri endurskoðunardagurinn var haldinn 25. mars n.k. kl. 08:30-12:00. Dagskrá dagsins má finna hér. Þema ráðstefnunnar var: uppbyggingin eftir bankahrun og hvaða áhrif mun hrunið hafa á stjórnarhætti, siðareglur og endurskoðun til framtíðar. Ráðstefnan var haldinn í Veisluturninum sem staðsettur er á 20 hæð í Turninum við Smáratorg í Kópavogi. Öllum var heimil þátttaka. Nálgast má glærur fyrirlestrana hér: Ráðstefnan sett(Nanna Huld Aradóttir) Vinnubrögð atvinnulífsins - hvar stöndum við og hvert er ferð heitið? (Dr. Finnur Oddsson) Samkeppni og efling atvinnulífs ( Páll Gunnar Pálsson) Lærum af reynslunni - öfgar og skynsemi í stjórnarháttum (Dr. Þóranna Jónsdóttir) engar glærur Viðbrögð í kjölfar fjármálakreppunnar er snúa að endurskoðendum (Sigurður Þórðarsson) Stjórnarhættir og áherslur við eftirlitsskylda fjármálastarfsemi (Rúnar Guðmundsson) Ytri gagnrýni og innri viðbrögð - rannsókn á gagnrýni á fjármálastöðugleika (Þröstur Olaf Sigurjónsson)
Morgunverðarfundur FIE - Endurskoðunaráætlanir - vítt og breitt - 23 febrúar 2011 Fyrirlesarar: Hallur Símonarson, innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar og Kristín Baldursdóttir, forstöðumaður innri endurskoðunar hjá Landsbankanum Að loknum erindum Halls og Kristínar er gert ráð fyrir opnum umræðum fundarmanna. Í erindi sínu mun Hallur fjalla um þróun verklags við gerð endurskoðunaráætlunar hjá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar og farið yfir aðferðafræði við val verkefna. Framsetningu endurskoðunaráætlunar verður lýst og farið yfir hvernig hún nýtist sem verkfæri við stjórnun verkefna Innri endurskoðunar. Í erindi Kristínar verður dregin upp mynd af áætlunargerð Innri endurskoðunar Landsbankans, þ.e. 3ja ára áhættumiðaðri áætlun og undiráætlunum sem henni tengjast. Fjallað verður um val verkefna og hvernig brugðist er við til að ná raunhæfari áætlun. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 23. febrúar næstkomandi kl. 08:30 - 10:00 á Hótel Loftleiðum, í Þingsal 4. Boðið verður upp á morgunverð. Verð 2.300 kr. Tilkynnið þátttöku með því að senda póst á fie(hjá)fie.is Fræðslunefnd FIE.
Fréttabréf FIE - janúar 2011 Fræðslunefnd FIE hefur tekið saman fréttabréf FIE, í því eru að finna ýmsar fróðlegar greinar. Blaðið má nálgast hér á þessari síðu.
Morgunverðarfundur FIE - Tölvustudd gagnagreining í endurskoðun - 26 janúar 2011 Kynntur verður hugbúnaður sem sérhannaður er til gagnagreiningar í endurskoðun og farið yfir hvernig megi nýta slíkan hugbúnað í innri endurskoðun. Fyrirlesarar: Páll Ólafson, CIA, innri endurskoðandi Byrs sparisjóðs og Albert Ólafsson CISA CIA, Ríkisendurskoðun. Fundurinn verður haldinn miðvikudag 26. janúar næstkomandi kl. 08:30 - 10:00 á Grand Hóteli, Háteig A. Boðið verður upp á morgunverð. Verð 2.300 kr. Fjölmennum á fundinn. Tilkynnið þátttöku með því að senda póst á fie(hjá)fie.is Fræðslunefnd FIE.
Fyrsti íslendingurinn með CFSA gráðu Guðjón Viðar Valdimarsson hefur náð Certified Financial Services Auditor (CFSA) gráðunni frá IIA. Félagið óskar Guðjóni til hamingjum með þennan áfanga. Þess má geta að Guðjón starfar hjá Seðlabanka Íslands auk þess sem hann er í fræðslunefnd FIE.
Morgunverðarfundur - sviksemis- og trúnaðarbrot - 24. nóvember 2010 Félag um innri endurskoðun boðar hér með til morgunverðarfundar. Efni fundarins er "SVIKSEMIS- OG TRÚNAÐARBROT SEM VIÐFANGSEFNI INNRI ENDURSKOÐUNAR". FYRIRLESARI: Jón H. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari höfuðborgarlögreglu. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 24. nóvember, kl. 8:30-10:00, á Grand Hótel, 4. hæð. Boðið verður upp á morgunverð. Verð kr. 2.000. Fræðslunefnd FIE
Fréttabréf ECIIA - nóvember 2010 Evópusamtök Félaga um innri endurskoðun (ECIIA) hefur gefið út fréttabréf. Hér má nálgast fréttabréfið.
Morgunverðarfundur - áhættustjórnun -20. okt. 2010 Félag um innri endurskoðun boðar hér með til morgunverðarfundar. Efni fundarins er áhættustjórnun og verður umfjöllunin tvíþætt: ÁHÆTTUSTJÓRNUN – HLUTVERK INNRI ENDURSKOÐUNARDEILDA Fyrirlesari: Anna Margrét Jóhannesdóttir, MPA, CIA. Verkefnisstjóri hjá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar ÁHÆTTUSTJÓRNUN OG INNRA EFTIRLIT Enterprise Risk Management og hvernig ERM var nýtt hjá Ríkisendurskoðun í úttekt á virðisaukaskatti. Erindi Inga K. Magnússonar, cand. oecon, CIA, CGAP. Sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 20. október, kl. 8:30-10:00, á Grand Hótel, 4. hæð. Boðið verður upp á morgunverð. Verð kr. 2.000. Fjölmennum á fundinn. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda póst á fie(hjá)fie.is Fræðslunefnd FIE
Ytri gæðaúttektir á innri endurskoðunardeildum Með bréfi dagsett 26. maí 2010 bauð félag un innri endurskoðun (FIE) stærstu endurskoðunarskrifstofunum hérlendis að kynna þjónustu sína á sviði ytri gæðaúttekta á starfsemi endurskoðunardeilda á heimasíðu félagsins. Svar hefur borist frá Deloitte. Hér má finna kynningarefni Deloitte Þjónusta á sviði ytra gæðaeftirlits innri endurskoðunardeilda fyrirtækja (Quality Assessment Review of Internal Audit).
Fréttabréf FIE - september 2010 Fræðslunefnd FIE hefur tekið saman fréttabréf þar sem er að finna ýmsar fróðleik og upplýsingar um viðburði sem eru á döfinni hjá félaginu. Hér má nálgast fréttabréfið.
Fræðslufundur FIE - Faggildingarpróf innri endurskoðenda (CIA) Fjallað verður um faggildingarpróf innri endurskoðenda(CIA), hvernig þau eru sett upp, nauðsynlegan undirbúning fyrir faggildingarpróf og hver ávinningur innri endurskoðenda er að hafa lokið faggildingu. Hugað verður að stofnun hóps vegna undirbúnings fyrir faggildingarpróf. Fyrirlesari: Guðjón Viðar Valdimarsson, CIA, CISA sérfræðingur hjá Seðlabanka Íslands. Fundurinn verður haldinn miðvikudag 8. september næstkomandi kl. 08:30 - 10:00 á Grand Hóteli, Gullteig. Boðið verður upp á morgunverð. Verð 2.000 kr. Fjölmennum á fundinn Tilkynnið þátttöku með því að senda póst á fie(hjá)fie.is Fræðslunefnd FIE Alþingi samþykkti þann 12. júní 2010 breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki. Með lagabreytingunni vill Alþingi herða á ýmsum reglum sem gilda um fjármálafyrirtæki þar á meðal eru hert ákvæði um innri endurskoðun. Þessi lagabreyting mun væntanlega leiða til eflingar innri endurskoðunardeilda fjármalafyrirtækja. Vakin er athygli félagsmanna á þessari lagabreytingu. Aðalfundur FIE var haldinn fimmtudaginn 27. maí 2010 kl. 8:30. Fundurinn var haldinn á 19. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi. Dagskrá fundarins má nálgast hér. Á fundinum voru lagðar fram tillögur að breytingum á samþykkt félagsins. Tillögurnar má nálgast hér Á fundinum var ný stjórn og formenn nefnda kjörnir (sjá liðin "Stjórn félagsins" hér á síðunni.) Innri endurskoðunardagurinn var haldinn á Hilton Reykjavik Nordica föstudaginn 7. maí 2010. Á ráðstefnunni voru fluttir 6 fyrirlestrar sem m.a. fjölluðu um bætta stjórnun fyrirtækja og breytt eftirlit með fjármálafyrirtækjum. Nálgast má fyrirlestrana hér: Hugleiðingar um siðferðileg álitamál fyrir innri endurskoðendur (Ketill B. Magnússon) Umgjörð menntunar - Er þörf á breyttum áherslum? (Ari Kristinn Jónsson) Hlutverk stjórna og stjórnarhætti fyrirtækja - tímamót (Ragnar Önundarson) Siðblinda (Nanna Bríem)Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér. Alþjóðleg könnun IIA (frh.) IIA stendur nú fyrir yfirgripsmikilli alþjóðlegri könnun á sviði innri endurskoðunar. Alþjóðleg könnun IIA á innri endurskoðun mun meðal annars: · Veita innsýn í helstu málefni og áskoranir í starfsgreininni. · Leiða í ljós ný tækifæri til að auka virði innri endurskoðunar. · Stuðla að þróun nýrra mælikvarða og leiðbeinandi tilmæla, og margt fleira. Þátttaka þín í þessu framtaki er nauðsynleg til að tryggja að niðurstöður könnunarinnar endurspegli í raun eðli starfssviðs okkar á heimsvísu. Könnunin er tiltæk á meira en 15 tungumálum (þó ekki á íslensku) til að ná til sem flestra, og má gera ráð fyrir að það taki þig 20-40 mínútur að ljúka henni. Svör þín verða algjörlega ónafngreind. Fyrstu niðurstöður könnunarinnar verða kynntar í lok þessa árs. Til að sýna fram á þakklæti okkar fyrir tíma þinn og þekkingu, munt þú hafa tækifæri á að taka þátt í happdrætti þar sem í boði eru 30 Visa gjafakort að virði USD 200,- hvert, en kortin er hægt að nota hvar sem er í heiminum þar sem tekið er við Visa. Um er að ræða kjörið tækifæri til gagnlegs og varanlegs framlags fagaðila til framþróunar starfsgreinarinnar. Vinsamlegast smelltu hér til að taka þátt!
Tilkynning frá IIA um endurskoðun á IPPF stöðlunum. “The IPPF process requires that all guidance be reviewed at least once every three years to ensure that it remains current, relevant, and timely. The IIA’s Internal Auditing Standards Board (IASB) has recently conducted a comprehensive review of the International Standards for the Professional Practice of Internal Auditing (Standards) and is proposing changes to some of the Standards as well as recommending new Standards. Part of the established guidance process includes the exposure of proposed changes in mandatory guidance to stakeholders of the profession to ensure the modifications are clear, understandable, and consistent with the practice of internal auditing. The proposed revised and new Standards will have a 90-day exposure period from February 15, 2010 to May 14, 2010. To facilitate your response to this exposure draft, we encourage you to complete an online survey that will guide you through each of the proposed changes to the Standards and glossary. The survey will allow you to vote on whether you agree with the proposed additions or revisions and to provide additional comments. For access to the exposure instructions, online survey, and the webinar, visits: http://www.theiia.org/guidance/standards-and-guidance/2010-Standards-Exposure/. Alþjóðleg könnun IIA á innri endurskoðun. Frá og með 15. mars gefst félagsmönnum kostur á að taka þátt í alþjóðlegri könnun IIA á innri endurskoðun. Tilgangurinn er að fá nýjustu upplýsingar um innri endurskoðun sem faggreinar í heiminum í dag. Nánari upplýsingar um könnunina má finna hér. Félagið hefur einnig tekið saman spurningar og svör um þessa könnun og einngi má finna upplýsingar á heimasíðu IIA Allir félagsmenn eru hvattir til að kynna sér þessa könnun og taka þátt í henni.
Fyrirlestur Kristínar Kalmansdóttur um stjórnsýsluendurskoðun hjá Ríkisendurskoðun sem fluttur var á morgunverðarfundi félagsins 10. feb. 2010 má finna hér
Fyrirlestrar sem fluttir voru á morgunverðarfundi félagsins föstudaginn 11. desember má finna hér: Ágúst Hrafnkelsson: Innri endurskoðun - fagleg umgjörð Sif Einarsdóttir: Gæðastjórnun - gæðaeftirlit Félag um innri endurskoðun í samvinnu við Opna háskólann í Reykjavík stendur fyrir námskeiði um innra eftirlit dagana 29. og 30. október nk. Á námskeiðinu verður fjallað um skilgreiningu á innra eftirliti og atriði sem skipta máli við uppbyggingu innra eftirlits. Sett verður í samhengi og skilgreint hlutverk og ábyrgð innri endurskoðanda, stjórnar, stjórnenda og almennra starfsmanna við uppbyggingu og vöktun innra eftirlits. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Opna háskólans í Reykjavík Félag um innri endurskoðun og Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavik hafa undiritað samstarfssamning um námskeiðahald á haustönn 2009. Samkomulagið felur m.a. annars í sér að FIE leggur fram drög að námskeiðum sem það telur geta frætt stjórnendur í atvinnulífinu og almenning um. Lengd og vægi framlags FIE á hverju námsskeiði verður ákveðin í samráði við OH og einnig hvort um væri að ræða námsskeið sem eingöngu byggjast á framlagi frá FIE eða námsskeið þar sem þekking þeirra er hluti af námsskeiðahaldi OH. Tvö námsskeið verða á dagskrá OH haustið 2009. Annars vegar námskeið sem nefnist "Innri endurskoðun á tímamótum" og hins vegar námskeið sem nefnist "Innra eftirlit - lykilþáttur í velgengi fyrirtækja" Aðalfundur Félags um innri endurskoðun var haldinn miðvikudaginn 27. maí sl. Ársreikning félagsins ásamt fundargerð aðalfundar er hægt að nálgast undir flipanum "Fyrir félagsmenn" Morgunverðarfundur var haldinn þriðjudaginn 12. maí. Fyrirlesari var Tryggvi B. Jónsson frá Deloitte og fjallaði hann um innra eftirlit og upplýsingakerfi. Fyrirlesturinn má nálgast hér. Kennsl
Visitors to this home page: 20441 |
||||||
|
All contents of this Web site, except where expressly stated, are the copyrighted property of this IIA affiliate.
|
||